There are two kind of people in this world, people who like me and those who can go to hell :P

Get buzzed, get drunk get crunked get fuuucked up !!!

30.12.2006 22:15:19 / kalla_44

BARNAPERRI

Ojjjbarasta...:!: Fokkin viðbjóðslegur gaur :!:

lesið þetta og gætið ykkar :!:

"(Þessu var fleygt út)"








» 3 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 17:19:09 / kalla_44

Ný Siða

Hææ... Gleðileg jól öllsömul. :)

Við erum flutt í nýja húsið :D Loksins :) Áslaug er að fara að koma á eftir í heimsókn

En ég er komin með nýja síðu. Ásamt Auði og Önnu.

Allavega.... Nýja síðan er www.blog.central.is/waffles

Happy Christmas :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 22:00:46 / kalla_44

21. desember

Fór að hitta Lilju í gær :!: Hún bað mig um að hitta sig og þrátt fyrir að ég fann ekki fyrir fótunum á mér þá lét ég eftir. Náði í hana og sýndi henni fallega húsið mitt :D
Fórum svo aðeins á rúntinn og hún fékk sér PYLSUTILBOÐ kl. hálf1 leytið í nótt :S
Kíktum svo á Draugahús sem er í Árbænum. Geeeeðveikt creepy ..:!: Skógur þarna í kring og váá, þetta var eins og í mynd...:!: Enda við löbbuðum aðeins inn á lóðina og hluuupum burt nokkrum sekúndum síðar :!:

Svo vaknaði ég kl. 11:20 í morgun við að Anna hringdi í mig. Var mjöög mygluleg og úldin í símanum og svo steinsofnaði ég aftur og vaknaði 12:30 :$ Talaði við mömmu og þau voru bara byrjuð að raða inn. Pottum og drasli :!:.
Ég fór í Kringluna og keypti restina af jólagjöfum :!: Nema Tara og afi eru eftir :P Er bara að pæla að kaupa lifrakæfu handa telpunni :P
Kom svo heim um 15 leytið og fór að þvo þvottinn. Tíndi svo saman dótið sem ég þarf ekkert að nota og fór með það upp í Gvendargeisla. Þá voru þau nánast búin að tína úr gámnum :!: 8|
Náði í Önnu og við hjálpuðum þeim með restina... :!: Þannig við erum komin með húsgögnin okkar aftur :P Maður þekkti nánast ekki dótið sitt aftur. :!:

En við flytjum inn á morgun :) Rúmin okkar eru enn í Keflavík. Hjónarúmið og ógeðslega rúmið mitt, eldgamalt :S Ég á að fá rúm í jólagjöf og var búin að finna rúmið sem ég vildi en NEI, þá er bara allt uppselt og kemur ekki fyrr en í febrúar aftur :^) En það er frekar furðulegt að hugsa að þetta er síðasta nóttin mín hjá afa :S Mig langar eiginlega ekkert að fara...:!: Þótt það vanti sonna 80% af dvd myndunum mínum :S :!:

En allavega.. ég gæti sofnað núna...:!: Ég er svo þreytt..


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 23:03:57 / kalla_44

Húsið tilbúið :D

Váá, ég, mamma, pabbi, sigga og björgvin vorum í 4 tíma að þrífa húsið í dag :S

Við þurftum að þrífa veggina, gluggana, gluggakisturnar, vaskana, háaloftið (sem ég gerði ;)) og bara vááá, ...... svo loksins kláruðu þeir og við betra kynið skúruðum gólfin. Þetta var viiiiðbjóður.:!: Sápuvatnið varð brúnt :!: :S

En svo ætlum við að flytja inn á morgun :!: Getum ekki gert það samt fyrr en eftirmiðdaginn. :S Það eru allir að vinna :( Og pabbi svo geðveikt bjartsýnn og segir að við verðum að flytja á föstudaginn með restina, t.d rúmið þeirra mömmu, frystikistuna og fl. frá Keflavík :( Leiðinlegt :!:

En annars er ekkert meira að segja... Langaði bara að láta vita :!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 22:20:55 / kalla_44

HRESS :D

Jeeeeeiiijjj :D Loksins hress :P Vaknaði í "morgun" klukkan 2 reyndar :$ og leið frábærlega vel :) Hætt að vera óglatt og með magaverki og gat borðað :P Ekki mikið reyndar. Er enn lystalaus :!:

Fór að vinna kl. 4 í bakaríinu og váá.. Geggjað mikið að gera í snyrtivörunni. Við vorum þrjár að vinna þar :!: En svo um 7 leytið var orðið rólegt. Var búin hálf10. Keypti mér pínu djús og fór heim :D

En verð að vinna dáldið um jólin ;) En er í fríi þar til á laugardag. Ætla bara að nota morgundaginn í að kíkja upp í hús að tala við parkettkallana fyrir mömmu, fara að kaupa jólagjafir og ef guð lofar þá getum við mamma þrifið húsið líka :D Erum að vonast til að þetta verði tilbúið á morgun og þá getum við þurrkað allt sagið og flutt inn á fimmtudaginn :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 18:01:54 / kalla_44

17. desember

Ooooo.... ég byrjaði aftur í morgun. :!: Vaknaði bara geggjað óglatt í morgun. Ég bað bara til Guðs að ég yrði nógu hress um 10 leytið svo ég gæti farið í vinnuna. En hann uppfyllti ekki þá ósk. Ég sofnaði um 7 leytið aftur og vaknaði 10 og gubbaði þá aftur svo ég reyndi að hringja í Hagkaup til að fá frí en skrifstofan mætir ekkert fyrr en 11. Þannig ég sendi Björgu sms um númer hjá þeim sem átti að vera yfir í dag en þá sem betur fer svaraði Gyða aðstoðarverslunarstjóri og ég fékk frí :) Þá svaraði Björg mér, hehehe... en hún hafði látið mig fá vakt á þriðjudaginn :P frá 16 - 22 þannig ég verð mjöög fegin að geta farið að vinna :D
Svo kom mamma og Ragna áðan. Mamma keypti Gatorate fyrir mig :) Ohh, þessi elska... ég dýrka hana :) Þau voru með kökur með sér sem þær keyptu í bakaríiu því afi er 80 ára í dag :D:D:D Garðar kom svo í heimsókn og allir fengu sér kökur. Ég var reyndar dauðhrædd við þær því ástæðan ég byrjaði í morgun var útaf matnum í gær. Ekki rétta fæðan sem ég fékk :S En ég stóðst ekki freistinguna og fékk mér smá.. Geggjað gott :) Verkjar aðeins í magann en ekki eins og í gær :!:
En svo sagði mamma mér Æææææææææðislegar fréttir ... :D:D:D Þær Ragna kiktu upp í hús og það er búið að parkettleggja alla stofuna, eldhúsið, hálft holið og byrjaðir á hjónaherberginu :D Kannski klára þeir á morgun :D:D Þá ætlum við bara strax byrja að flytja inn allt dótið. Þurfum reyndar heeeeilmikla hjálp :!: Held við séum komnar með 3 manneskjur, hehe :S Siggu, Björgvin og Önnu :S :S :S Svo hjálpaði Gussi vinur Garðars okkur síðast en hann er úti í Danmörku í heilt ár. :!:
En við ætlum að sofa þarna á fimmtudaginn :) Ohhh, þetta verður frábært :D Nema Rocky litli verður ekki :cry: Hann verður eftir hjá Helga. Hann verður þó hjá fjölskyldu.
En það er eitthvað að msn-inu hjá mér :S Ég kemst ekki á msn :!: Ekki á messenger né live messenger. :S Ég var inn á í gær en var away en þegar ég kom aftur var ég dottin út og síðan þá hef ég ekki komist inn. :( Svo er bara netið fucked up hjá mér :S

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 22:25:45 / kalla_44

16. desember

Jæja... Er að hressast en enn lystalaus. Matti gisti hérna í nótt en svo fóru þau Karitas, Beggi og Gunnar til Bandaríkjanna. Verða þar yfir jólin :S En það var svo krúttlegt sem Karitas sagði mér í dag með Gunnar.

Hann vildi kaffi eins og Beggi og þannig Beggi hellti bara pínkupons í bolla og hellti svo bara mjólk og gaf honum. Svo hvarf hann og þau fundu hann þar sem hann var með bollann og var að fletta blaðinu eins og Beggi gerir alltaf :lol: Krútt.... :P

En svo var Jólahlaðborð fjölskyldunnar í kvöld. Útaf afi verður 80 ára á morgun ;) Við Garðar fórum saman en hann var alveg hrææææðilegur :!: Ég var að hafa mig til og þurfti að máta nokkra kjóla og festist í einum :$ og hann þurfti að hjálpa mér úr honum :$ og svo fór ég í eikkern rauðan kjól sem Karitas á (held ég) og hann var alltof lítill... Eða stuttur... og svo endaði á því að ég fór bara í svarta kjólinn minn :P og svo tuðaði hann og tuðaði og var alltaf að segja mér að flýta mér að ég gat varla hugsað lengur og endaði með að ég gleymdi úrinu mínu, skartgripum, tösku og jólakortum :!: Og við komum ALLTOF snemma :!: Reyndar vorum við 10 mín of fljót en allir hinir seinir :P hahahahaha
En þetta var rosalega góður matur ;) Þótt ég borðaði ekki mikið og ég er nánast að fara að *****. Svo kom Jólasveinn :lol: og fór að syngja fyrir okkur. Haha..:!: Svo söng hann í skóginum stóð kofi einn og mamma sagði, Já, Kalla og Garðar ættu að kunna þetta og ég svoleiðis grét úr hlátri. Sannleikurinn er sá að Garðar bjó til annan texta um þetta lag sem hljómar sonna:

Í skóginum stóð kamar einn
Sat í honum jólasveinn
Þá kom lítið héraskinn
sem vildi komast inn
Jólasveinn ég treysti á þig
ég er alveg að skíta á mig
Komdu litla héraskinn
Því ég er nýbúinn.

En svo fór hann að gefa krökkunum jólagjafir (sem voru nammipokar) hehehe.. Ragna litla frænka var dauðhrædd við Skyrgám en samt geðveikt forvitin og Katrí (Veit ekki hvernig maður stafar nafnið hennar)(Mamma hennar er finnsk) ljómaði öll þegar hann gaf henni pokann :P Algjör rúsína :D

En þetta var Einar Möller sem var jólasveinninn. Sá vinsælasti á landinu og gamall vinur Helga frænda :P Svo sungum við afmælissönginn að sjálfssögðu :P
Rétt eftir matinn létum við Garðar okkur hverfa. Reyndar var þetta eiginlega búið og mér var óglatt og drepast í bakinu.

Svo þurfti Helgi "litli" frændi (A.K.A Sveitta Kjötbollan) að fá far. Var alveg ósofinn, var á djamminu í nótt og ætlar aftur núna :S Hann talaði og talaði og talaði og ég vissi að Garðar var orðinn frekar þreyttur á honum. Svo loksins sagði hann: Hey, er þetta Queen diskur. Er ekki Don't stop me now á honum og við settum það lag á í von um að hann myndi þegja þá en Neeeeei, þá fór hann að syngja með :!: Fokk, eyrun voru að detta af mér :S Svo kom næsta lag og hann hlustaði þá bara (Thank god) og svo kom Bohemian Rhapsody og hann söng aðeins í byrjuninni og svo steinþagnaði hann. Ég var bara váá, guði sé lof en svo leit ég í aftursætið og þá var hann steeeeinsofnaður. Og við Garðar bara.. Fjúfff og vorum að pæla að negla niður og öskra til að stríða honum en þá hringdi síminn hans og hann talaði restina af leiðinni :S

Svo kíkti Garðar aðeins upp og Anna hringdi og þá fór hann að grýta koddum í mig meðan ég var að tala í símann og pota í magann á mér baaara til að pirra mig :!: Og rétt áður en hann fór horfðum við á MTV og hann var að láta mig giska hvaða hljómsveit þetta væri eða hann giskaði og hversu mikið ég myndi borga honum ef þetta væri rétt :!:

Afi var að koma rétt áðan heim.... Við erum bæði dauðþreytt :) Jæja... ég ætla að bara að fara að lúlla :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 14:17:23 / kalla_44

Einkunnir... - Skólinn búinn

Jæja.... fór og náði í einkunnirnar í morgun. :!: Er sonna að hressast... Verð stundum óglatt en jæja... ég lifi þetta af :)

Ég féll í 2 fögum :!: Stærðfræði og Íþróttum. :$ Stærðfræðin kom mér ekkert á óvart en íþróttir... What the fuck :!: Fékk 3 :S  Fékk 4 í stærðfræði :S En ojæja .. ekkert sem maður getur gert í því. :!: En ég náði enskunni... Haha... hélt að ég væri svo skítfallin. En neibb.. ég fékk 6 :P Fékk 5 í félagsfræði, 6 í skólasókn og íslensku 7 í sögu og 8 í frönsku :P :D Bara mjööög sátt :!:

En svo komu mamma og pabbi áðan :P Við erum loksins búin að fá afhent. :!: Það er verið að parkettleggja og þeir ættu að vera búnir á þriðjudaginn og þá getum við flutt inn... Loksins :) Verður samt leiðinlegt að fara frá afa :( Æjjj hann er búinn að vera svo góður ....

En jæja... ég ætla að fara að gera eikkað


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 20:07:25 / kalla_44

Ég er að verða fokkin geðveik !

Ohhh... þetta er svoooo yndislegur dagur :!: NOT....:!:

Ég fór að sofa kl 3 í nótt....:!: Og ég var mjög hress...:!: Hafði verið hjá Karitas fyrr um kvöldið og við fengum okkur Kentucky og horfðum á Aladdin :P Voða gaman og svo fór ég bara heim og afi var að horfa á Grey's Anatomy ... "Endursýndan frá síðasta mánudag" og svo eftir honum kom The Closer og Crossing Jordan og ég missti af Jordan svo ég horfði á hann og allt í einu var klukkan orðin hálf2. Svo ég fór bara inn en fór að hlusta á tónlist og þegar ég leit á klukkuna allt í einu var hún 2:45 :S svo ég bara fór að sofa :!:

Svo dreymdi mig svooo furðulega.. Mig dreymdi að Karitas var að halda framhjá Begga :!::!: Og aldrei með sama manninum og ég upplifði sama andartakið í draumnum sonna 5 sinnum og þá var Karitas nýbúin að "halda framhjá" og hún var svöng og við fengum okkur að borða en ég var aldrei svöng.:!: :S og mér fannst eins og ég væri að troðfylla á mér magann :S Svo allt í einu vorum við komnar heim til Karitasar og hún stóð við sjónvarpið með fötu af Kentucky kjúklingum (Þegar ég kom heim til afa í gær var akkúrat atriðið í Grey's þar sem George var með fötu af steiktum kjúklingum og var að reyna að sleikja Callie upp)(Þar fékk ég þessa fötu hugmynd) og Karitas var að reyna að troða Kentucky kjúklingum upp í mig og þá kúgaðist ég. :S Þá vaknaði ég og ég var byrjuð að kúgast í alvörunni og fór inn á bað og ældi og ældi og ældi :( Þar til ég stíflaði vaskinn :cry: Svo var mér næsta einn og hálfan klukkutímann (Klukkan var 7 :!: ) ógeðslega flökurt og leið eins og kjúklingur væri í hálsinum á mér og fann alltaf bragð af Kentucky og ég var alveg að fara að æla .!: Talaði við pabba og hann sagði mér að honum leið NÁKVÆMLEGA eins þegar hann fékk ælupestina í október og við fengum okkur Kentucky.. Hann hefur ekki getað borðað það síðan .S :!:

Síðan þá hef ég legið hérna upp í rúmi, óglatt, með fötu við rúmið mitt og Gatorate sem afi var svo góður að kaupa fyrir mig.
Ég átti að vinna frá 16 - 22 í bakaríinu og ætti vera þar núna en nei... ég er að mygla hér í staðinn. Talaði við Tótu (Vildi frekar tala við Björgu hún skilur mann) og sonna var samtalið
Hver er þetta?
Tóta
Hæ þetta er Karólína og ég á að vera að vinna í bakaríinu frá 16 - 22 en ég er bara orðin fárveik
Fárveik já,
Aha, ég vaknaði klukkan 7 í morgun og var bara með þvílíka gubbupest
Er það já?

Hverju átti maður að svara... Nei, ha ha ha 1. apríl :!: What the fuck :!:
Svo hringdi ég í Heilsuvernd og bjóst við sömu móttökum en sem betur fer ekki.
Ég komst að því að þetta er að ganga, þetta er mjög fljótt að ganga yfir og ætti að vera hress á laugardaginn :!:

Annars er jólaballið í kvöld... :!: Anna og Auður ætla.. :S Svo þær dansa af sér rassgatið meðan ég ligg hér og læt mér leiðast :S Má ekki standa upp og þá verður mér kalt, mér verður flökurt og byrjar að svima :S Svo allur dagurinn minn hefur farið í að "reyna" að sofa, horfa á The Rock og Grey's :S Shit, ég þarf að fara að fá mér nýja þætti :!: Garðar sagði mér að hann ætti The O.C þriðju seríuna í tölvuna og fyrstu 6 þættina úr þeirri fjórðu :!: En No Fokkin way að ég biðji hann um að koma... Ætla nú ekki að fara að smita hann :!:

Jæja... ég ætla að reyna að finna mér eikkað að borða... ég er að drepast úr hungri (Enda búin að vera með tóman maga í meira en 13 klst) en samt ekki svöng en ég verð að fá eikkað í magann á mér.. :S Held að það sé samt ekkert sem er til sem ég MÁ borða :(


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 13:52:39 / kalla_44

13. desember

2. dagar :D:D:D:D:D:D...... Parkettgaurinn ætlar að leggja parkettið okkar strax á föstudaginn um leið og við fáum afhent :D :!:

Svo er vinna á eftir ;) Á kassa reyndar :S En jæja... það er fínt :!: Þá get ég loksins fengið eikker laun :P En jámm :!: Á morgun er síðasti dagurinn minn ... af uppsagnafrestinum .... Vúúúhúúú :P En ég ætla samt að vinna þar til eftir jól
En svo næsta sumar er bara að leita að annarri vinnu ... Og ekki í matvörubúð takk fyrir.. Held ég finni eikkað annað :!:

Fór á Laugarveginn áðan að kíkja í Skífuna. Var afgreidd af Lay-Low :P Hehehe.. var búin að gleyma að hún ynni þarna. Ótrúlega fín stelpa.
En jámm... ég keypti jólagjöf þarna... Ætla ekki að segja fyrir hvern ;)

En þá eru nokkrir búnir:

  • Anna
  • Auður
  • Áslaug
  • Ólöf

Eftir:

  • Karitas
  • Matti
  • Mamma
  • Pabbi
  • Garðar
  • Arna
  • (Veit ekki með Kötu) Þarf að ræða við hana
  • Afi

Þetta jóladæmi er rosa mikið vesen. Ég talaði við Karitas og spurði hana hvað hún vildi og hún sagði mér að gefa henni eftir hún kæmi frá USA því þá eru útsölur... HAHAHAHAHA :P Hún pælir alltaf í öllu sonna :!:

Ég var að hjálpa henni með stærðfræðina í gærkvöldi. Hún er bara með þroskaheftan kennara :!: Halldór... Hann er nákvæmlega eins og námsráðgjafinn í South Park. It's easy m'kay... Hann kenndi þeim ekkert orðadæmin svo komu orðadæmi í prófinu og svo er hann ekkert að kenna þeim. Það fyrsta sem hann sagði í tíma þegar ég fékk hann sem stærðfræðikennara var: Ég hef ekki mikinn tíma til að hjálpa ykkur svo það er gott að þið sitjið 2 og 2 saman og hjálpið hvort öðru og það er eikkað sem og Karitas þurfum EKKI... Við þurfum eikkern sem hefur þolinmæðina að sitja með okkur og smyrja þessu í hausinn á okkur.  Sem er ekki Halldór.. :S Hann er dregur alla niður með þá vissu að allir eiga eftir að falla :!:

En jæja.. ég ætla að spjalla við hana Önnu hérna á msn ;)



» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 16:18:02 / kalla_44

12. desember... - Jóólafrííí :D

Prófin búin og framundan VINNA :!:Byrja á morgun strax en fæ sem betur fer frí á laugardaginn :D Þá er jólahlaðborð því afi á afmæli á sunnudaginn. Orðinn 80 ára kallinn ;)

En já ... góðu fréttirnar og æðislegu fréttirnar :)

Mamma kom í bæinn í dag og við fórum í bæjarferð. :!: (sem var reyndar bara Rúmfatalagerinn :P HEHEHEHE) Og fórum að skoða rúm fyrir mig :!: Og við FUNDUM rúmið sem ég vil fá :D Minnir að það sé 120 * 153 :P :D Mjööög þægilegt... :)
En svo fórum við upp að Gvendargeisla og allt lítur glæsilega út :!. Við skoðuðum það frá toppi til táar. Skápar og innréttingar komnar upp. Nema á eftir að klára inni á baðherbergi en baðkarið okkar er komið og meira segja skítugt vatn í því :!: Búið að flísaleggja og alles ;) Og við fáum húsið afhent 15. DESEMBER :D Á föstudaginn.... jeeeeijjj...:!: Má meira segja byrja að parketleggja á fimmtudaginn og þá verðum við komin inn í næstu viku :D Enda eins gott...:!: Við erum öll komin með upp í kok af þessu leiðindum að við erum nánast byrjuð að garga á hvert annað :!:

En jæja....:!: No more school í mánuð ..:) Ahhhhhhhh:!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 16:54:12 / kalla_44

11. desember

Jæja... síðasta prófið á morgun :P Er búin að vera að lesa undir þetta

En í dag fórum við Beggi með Karitas í sónar :!:  Við vorum með Gunnar Val og hann mátti ekki fara inn :!: Engum datt í hug að ropa því út úr sér þegar hún fór í mæðraskoðun eða what ever :!: Þannig þá varð það þannig. Ég beið frammi með Gunnar á meðan Beggi fór með Karitas (Hann er náttla pabbinn) og fékk að skoða og vita kynið :!: Og svo kom hann fram og tók við Gunnari og ég fór inn til Karitasar... Sá barnið geispa og alles :P Þetta var eins og lítil geimvera :D
En jámm... mér leist ekkert vel á ljósmóðurina .... Hún var í einu orði bara... biiiiitch :!: Hrikalega leiðinleg... Svo þegar ég kom þarna inn þá sagði hún geðveikt hratt.. Já, hérna er nef, munnur, auga, auga, hendur, fótur og hérna er hinn fóturinn og slökkti :!: Maður var bara what the fuuuuck enda ég snéri mér að Karitas og spurði... já, og hvert er kynið? og hún hló bara og sagði: strákur :P Þegar ég sagði mömmu þetta þá dó hún úr hlátri og sagði: Haha... hún verður bara með tvo skæruliða :D Hehehehehehehe :!: En hún (nema Dísa og Beggi) voru mjög hissa á að þetta hafi verið strákur því að allir voru pottþéttir á því að þetta væri stelpa. En alltaf gaman að eiga stráka :P Gunnar kennir litla bróður hvernig á að pirra mömmu sína og solleis :) En hún er sett á 28. apríl. (Mamma hló líka og sagði að það kæmi henni ekkert á óvart ef hún ætti barnið á afmælisdeginum hans Kalla (Pabba Gunnars) og Garðars (Sorglegt, þeir eiga afmæli sama dag :() 30. apríl

En já Tara var hjá mér á laugardaginn og gisti hérna :) Ohhh...það var svo þægilegt að hafa lilluna hjá sér :D En váá, hvað hún er orðin mikil prímadonna :| Hún lá við hliðina á mér á sænginni og ég snéri mér við og þá truflaði ég hana víst og hún fór ekki í neina smá fýlu :!: Fyrst kvartaði hún þvílíkt og svo fór hún bara...:!: Og þá tók ég annan koddann minn og setti hann uppvið vegginn og þar kom hún sér fyrir sátt :!:
Og svo töluðu Pabbi og Helgi um hversu spillt hún væri eftir að hafa komið frá Reykjavík... Pfff....:!: Mamma og pabbi létu hana fá kodda sem hún sefur á heima hjá þeim... Á MILLI ÞEIRRA :!: Þau koma fram við hana eins og mig... ég fékk kodda og fékk að sofa á milli þeirra þegar ég var krakki :!: Það kæmi mér ekki á óvart ef þau létu hana fá sæng líka :!:

Svo fórum við í gær, ég afi, garðar og Tara til Keflavíkur í mat til mömmu :) Eldaði æðislegan hrygg fyrir okkur og lét mig pakka inn jólagjöfum :!: Geeeðveikt flott sem hún gefur Heklu litlu og litla bróður hennar. Hún keypti flíspeysur handa þeim og lét setja nöfnin þeirra á peysurnar :) Geggjað sætt :D
En svo kom að kveðjustund hjá okkur Töru :cry: og hún var ekki ánægð :!: Henni var lyft upp í glugga (sem pabbi er búinn að venja hana á) og hún horfði vælandi á mig fara :( Enda ég átti mjög erfitt með að sofna í gærkvöldi...:!: Þegar ég var að sofna þá var ég byrjuð að þreifa eftir henni að leita :!:  

En jæja... Ég ætla að halda áfram að læra :D Bæbæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 13:01:24 / kalla_44

Helgin framundan :)

Jæja...:!: Loksins pínu breik frá skólanum :P
Anna kom í gærkvöldi og við fórum í SingStar og sungum úr okkur raddböndin :P Seinna frétti ég að afi hafi verið að hlusta á okkur og fékk sér kaffi og settist fyrir framan sjónvarpið og þá steinsofnaði hann :P Svo vaknaði hann og þá var kaffibollinn á gólfinu og kaffið út um allt ... Hahaha Æjjj greyið :!: En svo ætlaði Matti að koma og við Anna fórum að ná í hann en neinei... þá kom hann ekkert :S Missti af rútunni og klikkaðist og þá "gleymdi" hann að láta mig vita og við Anna biðum í 20 mín eftir honum á rútustöðinni :!:

En svo í morgun komu mamma, pabbi og Tara litla :P Hún verður hjá mér í nótt :D Hún var nú ekki mjööög sátt að vera skilin eftir og gargaði eftir að þau fóru :!: En hún var fljót að jafna sig því ég var þarna en ég mátti ekki beina athyglinni af neinu öðru en henni því þá fór hún að grenja aftur :!: T.d þegar ég burstaði tennurnar þá flæktist hún á milli fótanna á mér ýlfrandi, svo meikaði ég mig og sat hún fyrir aftan mig gólandi :!:
En svo fórum við út að labba og fórum að Sólbraut 11 og mér sýndist enn vera að byggja þarna en neinei :!: Þá var eldhúsið bara sonna fáránlegt :S Mamma og pabbi fengu að kíkja inn og þau sögðu að þetta væri orðið fínt nema eldhúsið er hræðilegt :!: Frekar miheppnað :S En þau ætla að flytja inn í kvöld :!:

Hehehehe...:!: Tara var að uppgötva að fuglinn færi út úr búrinu :!: Hana dauðlangaði að afi tæki sig upp því fuglinn var á öxlunum á honum :!: :P Hehehehehe litla krútt :D

En svo var að Karitas að hringja :!: Gunnar orðinn veikur aftur :!: Hann er alltaf veikur :S Dáldið furðulegt :!: En við ætlum að kíkja í heimsókn á eftir og elda aftur ýsu :P Ég, Karitas, Gunnar, Tara og kannski Beggi :!: Vitum ekkert hvenær hann kemur heim :!:

En jámm... svo er bara eitt próf eftir :!: Saga ..... Mitt fag skohh ;) í 10 í mætingu og þátttöku í tímum sem gildir 20 % af lokaeinkunn :D Híhíhíhí ;)

En ég er að pæla að fara að gera eitthvað ... Veit bara ekki hvað :S


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 12:09:24 / kalla_44

Næstsíðasta prófið á eftir !!

Jæja... Franskan eftir og ég er búin að vera að kíkja eikkað á þetta :!: Ekkert stressuð ;) Ég er aldrei stressuð :P Nenni því ekki lengur.... Maður græðir ekkert á því. :!: Bara halda kúlinu, mæta í prófið, gera sitt besta og that's it. :!: Ef þú nærð, Frábært :D ef ekki... Þá hefuru ekki skilið fagið nógu vel og þá tekuru það bara aftur, skilur það og nærð því :!: Það er miklu betra að falla í fagi sem maður skilur ekki en að rétt skríða yfir það án þess að skilja það og fara í næsta áfanga og skilja þá ekki rassgat :!:

En jámm.... :!: Mig dreymdi heldur ekki vel í nótt enda er ég að drepast úr þreytu. Í þetta sinn voru engir ísbirnir að éta mig en mig dreymdi að Gunnar Valur litla dúlla sat á gólfinu inn í herberginu mínu fyrir framan sjónvarpið mitt (Þá var mun meira pláss á milli sjónvarpsins og rúmsins) og hann var með spelkuna mína (Eða þetta dót þarna sem ég set á hendina á mér þegar mig finnur til í úlnliðnum) og hann var með hana á hendinni sinni. Og ég var bara vóó, þetta er allt of stórt fyrir hann og tók hana af og þá hafði einhver skorið hendina af honum af við úlnliðinn og það bara vantaði hana og ég bara öskraði :!: Og eftir þennan draum þá vaknaði ég endalaust :!: Klukkan 5 og svo aftur (en leit ekki hvað klukkan var) og svo klukkan 8, 8:20 og um 9 og 10 og svo hringdi síminn minn 10:20 og þá gafst ég upp :!:

En svo ætlum við Anna að hittast í kvöld :!: Erum enn að plana hvað við ætlum að gera :P Við verðum pottþétt eitthvað frumlegar :D HAHA Eins og alltaf :P:P:P

En jæja... klukkutími í próf og ég ætla að fara að taka mig saman :!: Wish me good luck :*


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 16:16:51 / kalla_44

7. desember

Jæja.... núna eru aðeins 2 próf eftir. Léttustu prófin :D Franska og Saga... Fjúff :!:
Veit ekki hvernig stærðfræðin var :!: Þeir rugluðu mig geðveikt í ríminu með formúlublaðinu. Spara plássið og settu allt saman og ég bara WTF og þegar ég var að finna D þá var ég að reikna í raun út samhverfuásinn sem var ekkert í þessu dæmi :S Þannig ég reiknaði þetta dæmi 3var og vona að það kom út rétt :!: En jæja... ég gerði mitt besta ... :!:

En já... :!: Ég skil ekki af hverju konur eru með bílpróf :!: ÞÆR KUNNA EKKI AÐ LEGGJA :!: Ég hinsvegar er ábyggilega ekki kona því ég kann að leggja :!: BEINT En konur eins og mín ástkæra mamma kunna ekki að leggja :!: Hvað er málið með fólk að leggja í 2 stæði :!: Ekki það að það sé ekki nóg pláss

Mamma er í bænum því að því þau afi fóru í jarðarför :!: Held að hann vann með afa eða eikkað :!: Hann var orðinn mjög veikur greyið. En svo er tilviljun að Auður er í sömu jarðarför. Þessi maður var afi Hannesar kærasta Auðar.. :!:  Furðuleg tilviljun :!: Ég talaði við Auði í morgun (Var að pirrast yfir að íslenskumappan mín er ekki ennþá komin :S Og Auður fékk sína á mánudaginn :!: Pffff :S Þoli ekki sonna rugl... en þá sagði hún mér að hún væri að fara í jarðarför hjá afa Hannesar og ég var bara: Já, hvað heitir hann? og hún sagði mér það og ég bara 8| Í alvöru... mamma og afi eru líka að fara í þessa í jarðarför :!: :S
En ég samhryggist þér Auður mín :*

En svo var ég með hrææææðilega martröð í nótt og vaknaði hálf 9 í þvílíku sjokki.
Mig dreymdi að ég væri á leikvellinum á Eiðistorginu og það var alveg hópur af fólki þarna og ísbirnir og ísbirnirnir voru að éta fólkið :!: Og svo lenti ég í einum ísbirninum og hann sleit úr mér hjartað og át mig :!: Og þá vaknaði ég :( :cry: :(

En jæja... ég ætla að fara að kíkja á þessa frönsku..


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan